Home Íslenska English Maps&Directions Photo Gallery Mountaineering
Íslenska


 

Ferðaþjónusta
Skaftafell
Öræfajökull

Sveitin Milli Sanda
Öræfi


Norðurljós yfir Öræfajökli, séð frá Hofsnesi.

Þar sem jöklar og fjöll kallast á við himininn

Velkomin í Öræfasveit

    Fá héruð á landinu hafa um aldir sætt jafn mikilli einangrun og Öræfasveit. Jökulvötnin sem renna til sjávar úr Vatnajökli sáu löngum til bess að illfært var um héraðið hvort sem var fyrir ferðamenn eða aðra. Gott dæmi um þetta er sú staðreynd að fram á miðja 20. öld voru mýs óþekkt dýrategund í Öræfasveit. Fyrsta músin fannst í sveitinni upp úr 1960 og hefur því stundum verið f leygt að slík haf i einangrun sveitarinnar verið áður fyrr að kettir hafi drepist þar úr leiðindum.
    Þessari einangrun Öræfasveitar létti árið 1974 þegar Skeiðarárbrúin var tekin í notkun og sandarnir tengdust loks hringveginum um landið. Eftir það hefur ferðamannastraumur um Öræfasveit farið vaxandi jafnt og þétt og nú er svo komið að á annað hundrað þúsund ferðamenn fara um sveitina árlega. En þrátt fyrir einangrun hefur ferðamannastraumur ávallt legið um sveitina og krafist leiðsagnar yfir vötn og jökla. Því má segja að í Öræfasveit sé löng hefð fyrir þjónustu við ferðamenn og fjölmargir íbúar sveitarinnar voru landsþekktir vatnamenn og fylgdarmenn um jökla á árum áður. Aldagömul reynsla og eðlislæg gestrisni Öræfinga hefur séð til þess að Öræfasveit er nú einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna á íslandi þrátt fyrir að skammt sé síðan sveitin opnaðist. Og það með réttu því fá svæði á landinu bjóða ferðamönnum upp á að njóta jafn fjölbreytilegrar náttúrufegurðar.

Home

Last edited: 13.01.2010